
MOMENT leggur áherslu á persónuvernd og öryggi gagna þeirra sem nota kerfið.
Í þessari stefnu er útskýrt í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað, hvernig þær eru notaðar og hvernig við tryggjum öryggi þeirra.
Markmið okkar er að allir notendur, viðburðahaldarar og samstarfsaðilar viti hvernig við vinnum með persónuupplýsingar.
Ábyrgð
Margir steinar ehf. er rekstraraðili miðasölukerfisins MOMENT (moment.is) og ber ábyrgð á þeirri vinnslu sem lýst er hér.
Í sumum tilvikum vinnur MOMENT þó persónuupplýsingar fyrir hönd viðburðahaldara sem notar kerfið til að selja miða.
Viðburðahaldari er þá ábyrgðaraðili vinnslunnar og MOMENT vinnsluaðili samkvæmt vinnslusamningi.
Ef þú hefur spurningar um meðferð persónuupplýsinga eða vilt nýta réttindi þín, sendu okkur póst á moment@moment.is
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
MOMENT safnar aðeins upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu og uppfylla lögbundnar skyldur.
Við vinnum m.a. með eftirfarandi upplýsingar:
Upplýsingar eru notaðar til að:
Ef þú skráir þig á póstlista eða samþykkir markpóst færð þú einungis slíkar sendingar meðan samþykki þitt er virkt. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
Miðlun persónuupplýsinga
MOMENT miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema í eftirfarandi tilvikum:
Allir sem fá aðgang að gögnum fyrir hönd MOMENT eru bundnir trúnaði og skyldugir til að fara eftir persónuverndarlögum.
Öryggi gagna
MOMENT tryggir að allar persónuupplýsingar séu varðveittar á öruggan hátt.
Við notum þar á meðal:
Varðveislutími
Persónuupplýsingar eru geymdar svo lengi sem nauðsyn krefur til að uppfylla tilgang vinnslunnar eða lögbundnar skyldur.
Eftir þann tíma eru gögn annað hvort eytt eða dulkóðuð.
Reiknings- og bókhaldsgögn eru þó varðveitt í allt að sjö ár samkvæmt lögum.
Vefkökur
MOMENT notar vefkökur (cookies) til að tryggja virkni og bæta upplifun notenda.
Nauðsynlegar kökur tryggja eðlilega virkni vefsins.
Tölfræði- og markaðskökur eru aðeins notaðar með samþykki.
Breytingar á persónuverndarstefnu
Persónuverndarstefna MOMENT er endurskoðuð reglulega og nýjustu úgáfu má finna hér á vefnum.
Ef gerðar eru verulegar breytingar á stefnu okkar verður það tilkynnt á vefnum.